Alþjóðahandknattleikssambandið, International Handball Federation, hefur úthlutað tveimur boðssætum (e. wild cards) fyrir heimsmeistaramót karla sem fram fer í Þýskalandi í janúar á næsta ári. Dregið verður í riðla á morgun klukkan 16:00 Munich, þar sem liðin komast að því hverjir verða fyrstu mótherjar þeirra á mótinu. Alls bárust 13 umsóknir um þau tvö sæti sem í boði voru. IHF hefur ákveðið að veita Tyrklandi og Sádí-Arabíu boðskortin tvö sem í boði voru. Tyrkland mun taka þátt á heimsmeistaramóti karla í fyrsta sinn í sögunni. IHF telur þátttöku Tyrkja mikilvægt skref í áframhaldandi þróun landsliðsins, sem fær nú tækifæri til að mæta sterkustu þjóðum heims á stærsta sviði handboltans. Þá er einnig bent á að þátttaka Tyrklands gæti vakið mikla athygli í Þýskalandi, einu af gestgjöfum mótsins, þar sem talið er að um 3,5 milljónir einstaklinga af tyrkneskum uppruna búi í landinu. Tyrkland tapaði í lokaumferð umspilsins um laust sæti á HM gegn Noregi með samtals 20 markamun. Fyrri leikinn töpuðu þeir þrettán mörkum 43-30 og þann seinni með sjö, 37-30. Sádi-Arabía er hins vegar meðal fremstu handknattleiksþjóða Asíu og hefur verið í stöðugri uppbyggingu undanfarin ár. Landið mun nú taka þátt á HM í ellefta sinn, en síðast lék það á heimsmeistaramóti árið 2023. Þar með er ljóst að þjóðir á borð við, Austurríki, Ungverjaland, Holland, Svartfjallaland, Sviss og Tékkland leika ekki á heimsmeistaramótinu í janúar. 1. styrkleikaflokkur 2. styrkleikaflokkur 3. styrkleikaflokkur 4. styrkleikaflokkur

Styrkleikaflokkar fyrir HM 2027:

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.