Framlengir við PSG til 2030
Julien Kammerer / DPPI via AFP

Egypski landsliðsmaðurinn, Yahia Omar hefur skrifað undir nýjan samning við Paris Saint-Germain sem gildir til sumarsins 2030. Franska félagið staðfesti þetta á heimasíðu sinni og bindur þar með einn af lykilmönnum sínum til lengri tíma. 

Hægri skyttan gekk til liðs við PSG sumarið 2024 eftir farsælan feril hjá Veszprém í Ungverjalandi. Frá komu sinni til Parísar hefur hann fest sig í sessi sem einn af mikilvægustu leikmönnum liðsins og átt stóran þátt í velgengni þess í Frakklandi.

Í tilkynningu frá félaginu sagði framkvæmdastjórinn Thierry Omeyer að Omar væri einn af bestu leikmönnum heims í sinni stöðu og að framlengingin væri mikilvægur þáttur í framtíðarsýn félagsins. Omar lýsti einnig yfir ánægju sinni með að halda áfram hjá PSG.

,,Að framlengja samning minn við Paris Saint-Germain er mikilvægt skref á mínum ferli," sagði egypski landsliðsmaðurinn. 

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top