Nýliðarnir fá reynslu mikinn markvörð
Laurent Lairys / DPPI via AFP

Serbneski landsliðsmarkvörðurinn Vladimir Cupara hefur náð samkomulagi um að ganga til liðs við þýska félagið HBW Balingen-Weilstetten fyrir komandi keppnistímabil.

Cupara gengur í raðir Balingen eftir þrjú ár hjá Dinamo Búkarest í Rúmeníu.

Cupara, sem er 31 árs gamall, hefur á undanförnum árum leikið með nokkrum af sterkustu félögum Evrópu, þar á meðal Vive Kielce í Póllandi, Telekom Veszprém í Ungverjalandi og Dinamo Búkarest í Rúmeníu. Hann hefur jafnframt verið fastamaður í serbneska landsliðinu frá árinu 2016.

Balingen tryggði sér nýverið sæti á ný í efstu deild Þýskalands eftir að hafa endað í 2.sæti þýsku B-deildarinnar.

Þetta verður í fyrsta skipti sem Cupara leikur í þýsku Bundesligunni.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top