Flensburg útilokar snemmbúin félagaskipti Pytlicks til Berlínar
Philipp Szyza / AFP

Forráðamenn SG Flensburg-Handewitt hafa hafnað þeim vangaveltum að danski landsliðsmaðurinn Simon Pytlick fari til Füchse Berlin strax í sumar.

Það hefur legið fyrir síðan í desember að Pytlick yfirgefi Flensburg og gengur til liðs við Füchse Berlin eigi síðar en sumarið 2027. Undanfarnar vikur hafa þó verið uppi getgátur um að félagaskiptin gætu orðið að veruleika fyrr sérstaklega eftir að ljóst varð að Lasse Andersson yfirgefur Berlínar liðið og leikur í dönsku B-deildinni á næstu leiktíð.

Ljubomir Vranjes, yfirmaður íþróttamála hjá Flensburg, segir hins vegar að ekkert sé til í þeim sögusögnum.

„Við höfum alls ekkert heyrt frá Berlín. Það liggur ekkert tilboð fyrir sem við höfum samþykkt. Við höfum sagt nei við öllu og í raun er málinu lokið,“ sagði Vranjes í samtali við Dyn samkvæmt Sport Bild.

Pytlick er samningsbundinn Flensburg til ársins 2030, en í samningi hans er ákvæði sem gerir Füchse Berlin kleift að kaupa hann út sumarið 2027 gegn greiðslu upp á 750 þúsund evrur.

Þrátt fyrir það hafa verið uppi vangaveltur um að Berlínarfélagið hefði áhuga á að fá dönsku stórskyttuna fyrr í sínar raðir. Lasse Andersson hefur samið við HØJ Elite, þrátt fyrir að félagið hafi fallið úr dönsku úrvalsdeildinni og muni leika í 1. deild á næsta tímabili.

Samkvæmt yfirlýsingu Vranjes virðist þó ljóst að Simon Pytlick verði áfram hjá Flensburg og að félagaskiptin til Berlínar fari ekki fram fyrr en árið 2027 eins og áður hafði verið ákveðið.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top