Þýski landsliðsmaðurinn Juri Knorr verður í eldlínunni með Álaborg um helgina þegar liðið tekur þátt í úrslitahelgi Meistaradeildar Evrópu í Köln. Danska meistaraliðið mætir Viktori Gísla Hallgrímssyni og félögum hans í Barcelona í undanúrslitum keppninnar og takist Álaborg að komast áfram bíður annað hvort SC Magdeburg eða Füchse Berlin í úrslitaleiknum. Juri Knorr er á sínu fyrsta tímabili með Álaborg eftir að hann gekk til liðs við félagið frá Rhein-Neckar Löwen. Á sínu fyrsta tímabili hefur hann þegar unnið bikarkeppnina, Ofurbikarinn og danska meistaratitilinn með félaginu. Alfreð Gíslason landsliðsþjálfari Þýskalands telur að félagaskiptin hafi haft jákvæð áhrif á þróun leikmannsins ekki síst vegna þátttöku hans í Meistaradeildinni. „Að spila reglulega í Meistaradeildinni gerir hann betri. Pressan á honum er öðruvísi núna. Hann ber ekki lengur ábyrgðina á öllu liðinu á sínum herðum, eins og hann gerði hjá Rhein-Neckar Löwen,“ sagði Alfreð Gíslason við Handball-World og bætti Alfreð við að þetta gæti reynst lykilþáttur í áframhaldandi þróun leikmannsins. Hjá Álaborg er hann hluti af liði sem státar af mörgum stórum stjörnum og ábyrgðin dreifist með öðrum hætti en hjá Lowen. Alfreð segir að umhverfið og þátttaka hans í Meistaradeildinni hafi gert Jori Knorr að betri leikmanni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.