Efnilegur Svíi sagður á leið til Þýskalands
ANDREAS HILLERGREN /AFP

Þýska úrvalsdeildarfélagið ThSV Eisenach virðist vera nálægt því að tryggja sér einn efnilegasta unga leikmann Svíþjóðar. Samkvæmt þýska miðlinum Sport Bild er sænski vinstri hornamaðurinn Felix Montebovi á leið til félagsins og samningaviðræður sagðar á lokastigi.

Miðillinn greinir frá því að Montebovi hafi þegar verið staddur í Werner-Assmann-Halle síðastliðinn sunnudag þegar Eisenach tók á móti HSV Hamburg á heimavelli í lokaumferð þýsku úrvalsdeildarinnar.

Montebovi, sem er fæddur í Lundi, hefur á skömmum tíma skipað sér í fremstu röð ungra handknattleiksmanna í Svíþjóð. Hann hóf feril sinn hjá H43 Lund, lék síðar með IFK Ystad og gekk til liðs við HK Malmö árið 2024, þar sem hann festi sig fljótt í sessi sem lykilmaður liðsins.

Hinn tvítugi hornamaður hefur vakið athygli fyrir mikinn hraða, sprengikraft og öryggi í sóknarleik. Frammistaða hans skilaði honum einnig sæti í sænska landsliðshópnum en hann var í leikmannahópi sænska landsliðsins á Evrópumótinu í janúar. Hann kom inn í hópinn eftir að Jerry Tollbring meiddist.

Á mótinu skoraði hann sín fyrstu mörk á stórmóti og vakti athygli sænskra stuðningsmanna með sterkri frammistöðu í Malmö. Í mars 2025 lék Montebovi sinn fyrsta A-landsleik fyrir Svíþjóð.

Samkvæmt Sport Bild hafa nokkur þýsk félög fylgst grannt með þróun hans undanfarin misseri, en nú bendir flest til þess að Eisenach hafi betur í kapphlaupinu um þennan efnilega vinstri hornamann.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top