Dregið var í riðla fyrir heimsmeistaramótið í handknattleik sem fram fer í janúar nú rétt í þessu og þar fékk íslenska karlalandsliðið áhugaverðan riðil. Ísland verður í riðli með Japan, Barein og Norður-Makedóníu. Ísland var í efsta styrkleikaflokki fyrir dráttinn en Norður-Makedónía í styrkleikaflokki tvö. Japan var í lægsta styrkleikaflokki og Bahrain í þeim þriðja. Leikir í riðli H fara fram í Magdeburg. Nánari upplýsingar um leikdaga verða kynntar síðar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.