Riðlarnir á HM 2027 – Ísland gæti mætt Dönum í milliriðli
Thomas Traasdahl / Ritzau Scanpix via AFP)

Dregið var í riðla fyrir heimsmeistaramót karla sem fram fer í Þýskalandi í janúar á næsta ári. Ísland verður í H-riðli ásamt Norður-Makedóníu, Barein og Japan og leikur riðlakeppni sína í Magdeburg.

Þrjú efstu lið riðilsins fara áfram í milliriðla. Þar gæti Ísland mætt liðum úr G-riðli sem skipaður er Danmörku, Slóveníu, Bandaríkjunum og Angóla.

Það verður Norðurlandaslagur í riðli F þar sem Svíþjóð og Noregur mætast. Riðill F verður einnig leikinn í Magdeburg en þar verða frændur okkar í Færeyjum meðal þjóða ásamt Portúgal, Póllandi og Alsír. Það gæti því verið góð stemning í Magdeburg á meðan riðlakeppnin fer fram.

Þýskaland verður gestgjafi mótsins og fara leikir fram í München, Stuttgart, Kiel og Magdeburg.

Riðlar HM:

A-riðill: Þýskaland, Serbía, Túnis og Úrúgvæ.

B-riðill: Egyptaland, Ítalía, Grænhöfðaeyjar og Sádi-Arabía.

C-riðill: Króatía, Spánn, Síle og Tyrkland.

D-riðill: Argentína, Frakkland, Brasilía og Kúveit.

E-riðill: Svíþjóð, Noregur, Grikkland og Katar.

F-riðill: Portúgal, Færeyjar, Pólland og Alsír.

G-riðill: Danmörk, Slóvenía, Bandaríkin og Angóla.

H-riðill: Ísland, Norður-Makedónía, Barein og Japan.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top