Eisenach glímir við alvarlegan fjárhagsvanda
RONNY HARTMANN / AFP

Þýska handknattleiksfélagið ThSV Eisenach glímir áfram við verulegan fjárhagsvanda eftir að langtímastjórnandinn René Witte lét af störfum fyrir um mánuði síðan. Þrátt fyrir erfiða stöðu segir starfandi framkvæmdastjóri félagsins, Günter Oßwald, að félagið sé ekki í hættu á gjaldþroti.

Í samtali við MDR lýsir Oßwald stöðunni sem „mjög alvarlegri“ og segir að skortur á fjármagni sé víða innan félagsins.

„Það vantar í raun peninga alls staðar hér,“ segir hann. Þrátt fyrir fjárhagsörðugleikana hefur Eisenach staðið við allar launagreiðslur til leikmanna.

„Við höfum greitt laun á réttum tíma allt tímabilið,“ segir Oßwald og leggur áherslu á að leikmannahópurinn hafi ekki orðið fyrir beinum áhrifum af vandanum. Aftur á móti hefur félagið neyðst til að draga verulega úr útgjöldum í kringum liðið.

„Við höfum þurft að spara gríðarlega mikið í rekstri liðsins,“ sagði hann.

ThSV Eisenach endaði í 14.sæti þýsku úrvalsdeildarinnar á nýafstöðnu tímabili. Liðið fékk 21 stig og var fjórum stigum frá fallsæti. Liðinu gekk illa undir lok tímabils og tapaði sex af síðustu sjö leikjum sínum. Þá vann liðið aðeins einn af síðustu þrettán leikjum liðsins í deildinni.

Ein helsta ástæða fjárhagserfiðleikanna er að aðalstyrktaraðilinn, MANTOS Int. Food GmbH, hefur dregið sig út úr samstarfi við félagið. Oßwald segir þó að viðræður standi enn yfir og vonir séu bundnar við að fyrirtækið snúi aftur að verkefninu.

„Mantos hefur stutt okkur mikið í gegnum árin og ég vona að okkur takist að fá þá aftur til liðs við okkur,“ sagði hann.

Þrátt fyrir að staðan sé alvarleg telur hann að félagið geti unnið sig út úr vandanum án þess að grípa þurfi til gjaldþrotaskipta.

„Staðan er ekki svo slæm að við séum í hættu á að verða gjaldþrota. Þetta er hægt að leysa með skynsamlegum rekstraraðgerðum,“ sagði hann.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top