Danski landsliðsmaðurinn og línumaðurinn, Magnus Saugstrup sem verður í eldlínunni um helgina í Final 4 í Köln með sínu liði Magdeburg er nú orðaður við endurkomu til Álaborgar eftir nokkur farsæl ár hjá SC Magdeburg. Samkvæmt erlendum handboltamiðlum og orðrómi á samfélagsmiðlum gæti Saugstrup snúið aftur til uppeldisfélags síns sumarið 2027. Saugstrup, sem er talinn einn besti varnarmaður og línumaður heims um þessar mundir, lék með Álaborg frá árinu 2014 til 2021 áður en hann gekk til liðs við Magdeburg í Þýskalandi. Þar hefur hann unnið bæði þýska meistaratitla og Meistaradeild Evrópu og fest sig í sessi sem lykilmaður liðsins. Þrátt fyrir að vera með samning við Magdeburg til ársins 2029 hafa komið fram fregnir um að Álaborg vilji fá Danann aftur heim. Saugstrup var spurður út í þennan orðróm á blaðamannahitting í aðdraganda Final 4 helgarinnar í Köln um helgina og hann vildi lítið tjá sig um málið. „Þetta er áhugavert. Það er allavega eitthvað sem ég vissi ekki sjálfur,“ sagði Saugstrup brosandi í samtali við danska miðilinn HBOLD.dk. Saugstrup verður í eldlínunni í Lanxess Arena í dag þegar Magdeburg mætir Füchse Berlin í undanúrslitum Meistaradeildarinnar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.