Slóvenski leikstjórnandinn Domen Makuc var í gær valinn verðmætasti leikmaður (MVP) úrslitahelgar Meistaradeildar Evrópu sem fram fór í Köln. Makuc átti stóran þátt í sigri Barcelona á Füchse Berlin í úrslitaleiknum, þar sem spænska stórliðið fagnaði sínum 13. Evrópumeistaratitli eftir 37–34 sigur. Slóveninn skoraði fimm mörk í úrslitaleiknum en hann skoraði einnig fimm mörk í undanúrslitaleiknum þegar Barcelona vann Álaborg eftir framlengdan leik. Makuc er fyrsti slóvenski leikmaðurinn sem hlýtur MVP-verðlaun úrslitahelgarinnar í Meistaradeildinni en Gísli Þorgeir Kristjánsson var valinn MVP á síðustu leiktíð er Magdeburg varð Evrópumeistari. Domen Makuc yfirgefur Barcelona í sumar og gengur í raðir Kiel eftir sex tímabil í Barcelona. Makuc hefur verið hluti af sigursælu liði Barcelona undanfarin ár en Slóveninn hefur fjórum sinnum unnið Meistaradeild Evrópu með Barcelona. Á sama tíma hlaut danski stórskyttan Mathias Gidsel viðurkenningu sem markahæsti leikmaður Meistaradeildarinnar á tímabilinu eftir að hafa sett nýtt met með 161 mark í keppninni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.