Þrátt fyrir að Álaborg hafi tapað 32-26 fyrir SC Magdeburg í leiknum um þriðja sætið í Meistaradeild Evrópu var það ekki aðeins niðurstaðan sem sat eftir hjá Kristian Bjørnsen eftir leikinn í Köln. Á lokamínútum leiksins kom Christian O'Sullivan inn á völlinn við mikinn fögnuð áhorfenda. Þar með lauk einnig hans tíma hjá SC Magdeburg eftir tíu ár hjá félaginu. Eftir leikinn beið Bjørnsen eftir samlanda sínum til að kveðja hann. „Ég og O'Sullivan erum gríðarlega góðir vinir. Við höfum gengið í gegnum þetta saman,“ sagði Bjørnsen. Fyrir norska hornamanninn var augnablikið sérstaklega tilfinningaþrungið þar sem hans eigin ferli er einnig lokið. „Að fá að enda minn feril hér með honum þýðir auðvitað mjög mikið fyrir mig,“ sagði Bjørnsen. Þrátt fyrir tvö töp Álaborg í úrslitahelginni leit hann til baka á tímabilið sem skilaði félaginu öllum innlendum titlunum í Danmörku. „Þetta hefur verið gott tímabil. Við höfum unnið allt sem hægt var að vinna í Danmörku og eigum að vera stolt af því. Þó við höfum auðvitað vonast eftir því allra stærsta hér.“ Nú bíður síðasta ferðalagið með liðsfélögunum áður en nýr kafli tekur við. „Nú förum við í skemmtilega ferð með liðinu, síðan tekur við smá sumarfrí áður en hið raunverulega líf hefst.“ sagði Bjørnsen. Þannig lauk úrslitahelginni í Köln með sérstökum kveðjustundum fyrir tvo af reynslumestu leikmönnum norska landsliðsins, þar sem vinátta og virðing vógu þyngra en úrslitin á vellinum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.