Yfirgefur Kielce og leikur í heimalandinu
Tom Weller / dpa Picture-Alliance via AFP

Slóvenski landsliðsmarkvörðurinn Klemen Ferlin hefur skrifað undir tveggja ára samning við slóvenska meistaraliðið Slovan Ljubljana og mun leika með félaginu til sumarsins 2028. Félagið staðfesti komu hans á dögunum.

Ferlin, sem er 36 ára gamall kemur til Slovan frá pólska stórliðinu Industria Kielce þar sem hann hefur leikið undanfarin tvö tímabil. Áður hefur hann einnig varið mark HC Erlangen í Þýskalandi auk þess að leika með Celje, Gorenje Velenje og Trimo Trebnje í heimalandinu.

Markvörðurinn hefur verið fastamaður í slóvenska landsliðinu um árabil. Slovan bindur vonir við að reynsla hans muni styrkja liðið verulega fyrir komandi tímabil, en félagið hefur sett markmiðið hátt á næstu árum.

Ferlin sagðist spenntur fyrir nýju verkefni og kvaðst hafa fundið að tíminn væri réttur til að snúa aftur heim eftir mörg ár erlendis. Hann nefndi jafnframt að metnaður félagsins og skýr framtíðarsýn hefðu haft mikil áhrif á ákvörðun sína.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top