Ungverska handknattleikssambandið tilkynnti í dag að Chema Rodríguez muni láta af störfum sem landsliðsþjálfari karlalandsliðs Ungverjalands í handknattleik. Samningur Chema gildi til loka ágúst 2028. Spænski þjálfarinn tók við ungverska landsliðinu árið 2019, fyrst sem aðstoðarþjálfari en tók við sem aðalþjálfari vorið 2022. Á þeim tíma náði ungverska landsliðið meðal annars áttunda sæti á heimsmeistaramótunum 2023 og 2025, fimmta sæti á Evrópumótinu 2024 og tryggði sér þátttökurétt á Ólympíuleikunum í París sama ár. Ákvörðun ungverska handknattleikssambandsins er tekin eftir að landsliðinu mistókst að tryggja sér sæti á heimsmeistaramótinu á næsta ári. Liðið tapaði fyrri leik sínum gegn Serbíu 31-29 í Niš og þrátt fyrir eins marks sigur í seinni leiknum í Veszprém dugði það ekki til að vinna einvígið samanlagt. Ungverska sambandið sótti í kjölfarið um sérstakt boðssæti á mótið, en Alþjóðahandknattleikssambandið (IHF) ákvað að veita Tyrklandi og Sádi-Arabíu þau sæti sem voru til ráðstöfunar. Í yfirlýsingu frá handknattleikssambandinu kemur fram að stjórn sambandsins hafi komist að þeirri niðurstöðu að breytinga væri þörf á þjálfarateymi landsliðsins og því hafi verið ákveðið að Rodríguez léti af störfum. „Chema Rodríguez starfaði með landsliðinu í sjö ár, þar af í rúm fjögur ár sem landsliðsþjálfari. Fyrir hönd stjórnar og sambandsins vil ég þakka honum fyrir framlag sitt og þau fjölmörgu eftirminnilegu augnablik sem hann færði ungverskum handknattleik,“ sagði Ferenc Ilyés, forseti ungverska handknattleikssambandsins. „Við náðum hins vegar ekki þeim árangri sem stefnt var að í undankeppni heimsmeistaramótsins og möguleikar okkar á að komast á Ólympíuleikana minnkuðu verulega. Eftir ítarlegt mat á stöðunni taldi stjórnin að breytinga væri þörf á faglegu starfi landsliðsins og því hefur Chema Rodríguez látið af störfum sem landsliðsþjálfari.“ Ilyés sagði jafnframt að næsta verkefni landsliðsins yrði í nóvember og að sambandið hygðist finna eftirmann Rodríguez sem fyrst.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.