Segir að það verði erfitt að fylla skarð Emil Nielsen
MARIUS BECKER / AFP

Nýkrýndir Evrópumeistarar Barcelona standa frammi fyrir krefjandi verkefni fyrir næsta tímabil. Liðið þarf að kveðja tvo lykilmenn, þar á meðal danska landsliðsmarkvörðinn Emil Nielsen.

Barcelona tryggði sér sigur í Meistaradeildinni eftir sigur á Füchse Berlin í úrslitaleiknum í Lanxess Arena síðasta sunnudag en nú beinist athyglin að uppbyggingu liðsins fyrir komandi tímabil.

Danski landsliðsmarkvörðurinn, Emil Nielsen yfirgefur félagið og gengur til liðs við ungverska stórliðið Veszprém á meðan slóvenski leikstjórnandinn Domen Makuc heldur til þýska félagsins Kiel. Domen Makuc var valinn mikilvægasti leikmaður úrslitahelgarinnar í Meistaradeildinni.

Þjálfari Barcelona, Carlos Ortega, segir að brotthvarf þeirra verði mikið áfall fyrir liðið enda hafi þeir gegnt lykilhlutverkum í velgengni félagsins undanfarin ár.

Barcelona hefur þegar fundið eftirmann Nielsens í markinu. Spænski markvörðurinn Sergey Hernández kemur til félagsins frá þýska liðinu SC Magdeburg og er ætlað að mynda markvarðarpar með Viktori Gísla Hallgrímssyni.

Ortega segir að verkefnið verði ekki einfalt að fylla skarð Emils.

„Við búum yfir leikmönnum með mikið keppnisskap og leikmönnum sem leggja sig fram og starfsfólki sem leitast stöðugt við að bæta liðið og hjálpa hverjum leikmanni að ná sínu besta. Gallinn við að vinna alla titlana er sá að fólk ætlast til þess sama á næsta ári, og það er nánast ómögulegt. Emil og Domen eru að fara frá okkur, tveir afar mikilvægir leikmenn. Nú þurfum við að sjá hvernig við aðlögum liðið, en markmiðið er áfram að vera samkeppnishæfir,“ sagði Ortega í samtali við spænska miðilinn Mundo Deportivo.

Landsliðsmaðurinn, Janus Daði Smárason gengur í raðir félagsins í sumar frá Pick Szeged og á að leysa Slóvenann, Domen Makuc af sem leikstjórnandi liðsins.

Ronny HARTMANN / AFP
FC Barcelona's Danish goalkeeper #12 Emil Nielsen (C) and his teammates celebrate with the trophy after winning the EHF Men's Handball Champions League Final 4 final between Barca and Fuechse Berlin in Cologne, western Germany on June 14, 2026. Barca won the match 37:34. (Photo by Ronny HARTMANN / AFP)

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top