Nýtti sér ákvæði í samningi og gengur ekki í raðir HØJ
Johan Nilsson / AFP

Sænski landsliðsmaðurinn Axel Månsson gengur ekki til liðs við HØJ Elite eins og gert var ráð fyrir en eftir að félagið féll úr dönsku úrvalsdeildinni hefur sá sænski ákveðið að ganga ekki í raðir félagsins.

Samkvæmt heimildum TV 2 SPORT er þess í stað búist við að hann gangi í raðir Skjern í dönsku úrvalsdeildinni en Månsson lék á síðustu leiktíð með sænsku meisturunum í IFK Kristianstad.

Miklar væntingar voru gerðar til Månsson þegar HØJ Elite samdi við hann fyrir komandi tímabil. Axel sem fæddur er árið 2005, hefur verið talinn einn efnilegasti leikmaður Svíþjóðar og vakti athygli fjölmargra evrópskra félaga eftir góða frammistöðu í sænsku úrvalsdeildinni á nýafstöðnu tímabili þar sem Kristianstad vann þrefalt heima fyrir.

Fall HØJ Elite hefur hins vegar breytt stöðunni. Samkvæmt HBOLD.dk var Månsson eini nýi leikmaður félagsins með ákvæði í samningi sínum sem gerði honum kleift að rifta samningnum án frekari samningaviðræðna ef félagið félli úr deild. Hann hefur nú nýtt sér þann möguleika.

Framkvæmdastjóri HØJ Elite, Lars Vinther, staðfesti við Sjællandske Medier að Månsson gangi ekki til liðs við félagið.

„Ég get staðfest að Månsson hafði ekki áhuga á að spila í dönsku 1. deildinni. Ég er vonsvikinn fyrir hönd félagsins, enda er hann afar spennandi, ungur og hæfileikaríkur leikmaður. Við skiljum þó ákvörðun hans miðað við þær viðræður sem við höfum átt við hann,“ sagði Vinther.

Gert er ráð fyrir því að Axel Månsson verði kynntur sem nýr leikmaður Skjern á allra næstu dögum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top