Þýska stórliðið Füchse Berlin átti í viðræðum við þýska landsliðsmanninn Julian Köster áður en hann ákvað að semja við THW Kiel. Þetta kemur fram hjá íþróttastjóranum Stefan Kretzschmar. Julian Köster, sem er fyrirliði VfL Gummersbach og einn af lykilmönnum þýska landsliðsins, yfirgefur félagið í sumar og gengur í raðir THW Kiel í sumar. Samkvæmt frétt Handball-World greindi Kretzschmar frá því í þættinum „Kretzsche & Schmiso“ á Dyn að Füchse Berlin hefði einnig verið í kapphlaupinu um leikmanninn. „Ég ræddi við Julian Köster á sínum tíma fyrir hönd Füchse. Mér fannst hugmyndin um að hann gæti orðið Berlínarbúi mjög góð. Hann valdi hins vegar THW Kiel vegna Filip Jicha,“ sagði Kretzschmar. Þar með virðist þjálfarinn Filip Jicha hafa átt stóran þátt í ákvörðun Kösters um að ganga til liðs við Kiel, þrátt fyrir áhuga frá öðrum sterkum félögum Þýskalands. Nú er hinsvegar mikil umræða uppi um að Filip Jicha gæti verið rekinn sem þjálfari THW Kiel eftir vonbrigði félagsins undir lok tímabilsins en Kiel tekur ekki þátt í Evrópukeppni í fyrsta skipti í 33 ár á næsta tímabili.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.