Dregið var í riðla fyrir heimsmeistaramót karla í síðustu viku sem fram fer í Þýskalandi á næsta ári, dagana 13.–31. janúar. Heimamenn sem leika undir stjórn Alfreðs Gíslasonar verða í A-riðli ásamt Serbíu, Túnis og Úrúgvæ. Þjóðverjar sem fóru alla leið í úrslitaleikinn gegn Dönum á Evrópumótinu í janúar geta vel við unað. Alfreð Gíslason, landsliðsþjálfari Þjóðverja, sagðist ánægður með niðurstöðu dráttarins. „Ég er mjög sáttur. Þetta er afar áhugaverður riðill,“ sagði Alfreð eftir að ljóst var hvaða lið myndu mæta Þjóðverjum í riðlakeppninni. Þýskaland hefur leik á mótinu gegn Túnis 13. janúar. Tveimur dögum síðar mætir liðið Úrúgvæ áður en riðlakeppninni lýkur með leik gegn Serbíu 17. janúar. Serbar höfðu betur gegn Þjóðverjum í riðlakeppni Evrópumótsins fyrr á þessu ári og eiga Þjóðverjar því harma að hefna á heimavelli á næsta ári. Alfreð hafði varað við því fyrir dráttinn að oft reynist hættulegt að vanmeta andstæðinga sína. „Ef maður ætlar sér langt í mótinu þarf maður að geta unnið alla andstæðinga,“ sagði Alfreð. Leikjafyrirkomulag mótsins þýðir að Þjóðverjar geta ekki mætt ríkjandi stórveldi Danmerkur í riðlakeppni eða milliriðli. Danir, sem hafa unnið heims-, Evrópu- og Ólympíugull á undanförnum árum, gætu því fyrst orðið andstæðingar Þjóðverja í undanúrslitum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.