Veszprém hafnar sögusögnum um brottför Pascuals
Andreas Gora / AFP

Ungverska stórliðið One Veszprém hefur brugðist við orðrómi um framtíð þjálfarans Xavi Pascual og segir engan grundvöll vera fyrir vangaveltum um að hann sé á förum frá félaginu.

Í vikunni var kom orðrómur um að Pascual, sem hefur stýrt Veszprém undanfarin tvö ár væri líklegur til að taka við þýska stórliðið THW Kiel. Þá var því haldið fram að færeyski leikstjórnandinn Elias Ellefsen á Skipagøtu gæti gengið til liðs við Veszprém sem skiptidíll ef Pascual tæki við Kiel.

Í yfirlýsingu frá Veszprém kemur hins vegar fram að Pascual sé með samning við félagið til næstu tveggja ára og að stjórnendur hafi fullan hug á að halda samstarfinu áfram.

Pascual, sem vann Meistaradeild Evrópu þrisvar sinnum sem aðalþjálfari Barcelona, hefur unnið að uppbyggingu liðsins frá því hann kom til Veszprém. Samkvæmt félaginu vinnur hann nú þegar að undirbúningi fyrir tímabilið 2026–27 en liðið hefur ekki komist í Final 4 í Meistaradeildinni síðustu fjögur tímabil.

Þrátt fyrir að Veszprém hafi ekki komist í úrslitahelgi Meistaradeildarinnar í ár bendir félagið á að þrjú af fjórum meginmarkmiðum hafi náðst. Liðið varð ungverskur meistari með fullt hús stiga, vann ungverska bikarinn og lék til úrslita á heimsmeistaramóti félagsliða. Veszprém tapaði í vítakastkeppni gegn Füchse Berlin í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Veszprém styrkir leikmannahóp sinn enn frekar fyrir komandi tímabil. Til félagsins kemur danski markvörðurinn Emil Nielsen frá Barcelona, línumaðurinn Lukas Jørgensen frá Flensburg og ungverski landsliðsmaðurinn Imre Bence frá Kiel.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top