Gengur til liðs við Lemgo eftir áratug hjá Magdeburg
Andreas Gora / AFP

Norski landsliðsmaðurinn Christian O’Sullivan mun leika með þýska liðinu TBV Lemgo Lippe næstu tvö tímabil eftir að hafa samið við félagið til sumarsins 2028.

O’Sullivan sem er 34 ára gamall gengur í raðir Lemgo frá þýska meistaraliðinu SC Magdeburg þar sem hann hefur verið einn af lykilmönnum liðsins undanfarinn áratug. Á þeim tíma var hann fyrirliði liðsins og átti stóran þátt í einu sigursælasta tímabili í sögu félagsins.

Christian O’Sullivan gekk í raðir Magdeburg sumarið 2016 og hefur því leikið með félaginu tíu tímabil en hann gekk í raðir Magdeburg frá IFK Kristianstad í Svíþjóð.

Með Magdeburg vann O’Sullivan meðal annars þýska meistaratitilinn þrisvar sinnum, Meistaradeild Evrópu tvisvar, Evrópudeildina einu sinni og þýska bikarinn. Þá hefur hann leikið 206 landsleiki fyrir Noreg.

Á síðasta heimaleik sínum fyrir Magdeburg hlaut O’Sullivan sérstaka viðurkenningu þegar hann var tekinn inn í heiðurshöll félagsins. Aðeins 17 leikmenn höfðu áður hlotið þann heiður. O’Sullivan segir ákvörðunina um að skipta um félag ekki hafa verið auðvelda eftir tíu farsæl ár í Magdeburg.

„Ég var lengi að velta því fyrir mér hvort ég vildi reyna eitthvað nýtt eftir allan þennan tíma hjá Magdeburg. Eftir góðar viðræður við forráðamenn Lemgo og fjölskyldu mína er ég hins vegar sannfærður um að þetta sé rétt skref. Hér er fjölskylduvænt umhverfi, frábærir stuðningsmenn og öflugt lið sem átti frábært tímabil að baki,“ sagði O’Sullivan.

Florian Kehrmann, þjálfari Lemgo, segir komu Norðmannsins vera mikinn liðsstyrk.

„Við erum afar ánægð með að fá jafn reyndan og sigursælan leikmann til félagsins. Hann mun styrkja varnarleik okkar verulega, en einnig bæta við mikilvægum eiginleikum í hraðaupphlaupum. Þá verður hann fyrirmynd fyrir unga leikmenn félagsins sem eru að stíga sín fyrstu skref í efstu deild,“ sagði Kehrmann.

Lemgo var eitt af spútnik liðum tímabilsins í Bundesligunni en liðið hafnaði í 5. sæti deildarinnar á nýliðnu tímabili.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top