Þýska handknattleiksfélagið ThSV Eisenach heldur áfram að styrkja leikmannahóp sinn fyrir komandi keppnistímabil í þýsku Bundesligunni. Montebovi hefur skrifað undir tveggja ára samning við Eisenach sem gildir til sumarsins 2028. Félagið hefur samið við hinn tvítuga sænska hornamann Felix Montebovi sem lék með sænska landsliðinu á Evrópumótinu 2026. Á nýafstöðnu tímabili skoraði hann 69 mörk í 23 deildarleikjum fyrir HK Malmö. Á Evrópumótinu í janúar lék Montebovi sína fyrstu landsleiki á stórmóti fyrir sænska landsliðið. „Með Felix höfum við fengið afar áhugaverðan leikmann til félagsins. Hann býr yfir miklum hæfileikum og það er engin tilviljun að hann hafi þegar verið valinn í sænska A-landsliðið aðeins tvítugur,“ sagði Maik Nowak, íþróttastjóri Eisenach. Montebovi segist spenntur fyrir nýju verkefni sínu í Þýskalandi. „Ég er afar ánægður með að hafa skrifað undir samning við Eisenach. Ég hlakka mikið til að spila í Bundesligunni og fyrir framan frábæra stuðningsmenn félagsins. Við sjáumst í Werner-Aßmann-Halle,“ sagði Svíinn.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.