Krickau gagnrýnir Flensburg
RONNY HARTMANN /AFP

Mikið hefur verið rætt og ritað um félagaskipti danska landsliðs leikmannsins, Simon Pytlick sem gengur í raðir Füchse Berlin frá Flensburg sumarið 2027 þrátt fyrir að hafa skrifað undir langtíma samning við Flensburg á síðasta ári til 2030.

Þýska félagið Füchse Berlin reyndi hinsvegar að fá danska landsliðsmanninn Simon Pytlick til liðs við sig strax í sumar, en tilboði félagsins var hafnað af Flensburg. Samkvæmt erlendum miðlum bauð Füchse Berlin allt að 1,5 milljónir evra fyrir að kaupa Pytlick út úr samningi sínum við Flensburg. Hefði félagaskiptaupphæðin orðið sú hæsta í sögu handboltans.

Flensburg hafnaði hins vegar tilboðinu og því mun Pytlick ekki ganga til liðs við Berlínarfélagið fyrr en næsta sumar, þegar félagaskiptin taka gildi samkvæmt samningi.

Nicolej Krickau, þjálfari Füchse Berlin, gagnrýnir nú Flensburg vegna málsins. Í viðtali við Viaplay segir hann að Pytlick hafi ekki fengið það sem honum hafi verið lofað þegar hann skrifaði undir samning sinn við félagið.

„Það er augljóst að þegar honum hefur verið lofað ákveðnum hlutum við undirritun samningsins og þeim loforðum er síðan ekki staðið við, þá er það auðvitað erfitt fyrir hann að vera áfram hjá félaginu. En staðan er einfaldlega sú sem hún er. Við hlökkum bara til að fá Simon til okkar,“ sagði Krickau við Viaplay.

Pytlick er einn af lykilmönnum danska landsliðsins og hefur verið orðaður við nokkur af stærstu félögum Evrópu undanfarin misseri.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top