Hættur þrátt fyrir að hafa skrifað undir nýjan samning í apríl
Mors Thy

Danska úrvalsdeildarfélagið Mors-Thy hefur staðfest að aðalþjálfari liðsins Dennis Bo Jensen láti af störfum hjá félaginu strax í sumar, þrátt fyrir að hafa skrifað undir nýjan samning við félagið í apríl síðastliðnum.

Tilkynning félagsins kemur skömmu eftir að TV 2 Sport greindi frá því að Jensen væri á leið til Bjerringbro-Silkeborg og myndi taka við liðinu í sumar.

Í tilkynningu Mors-Thy segir að Dennis Bo Jensen fengið tækifæri sem hann telur henta sér og fjölskyldu sinni vel og óskaði því eftir að verða leystur undan samningi sínum við félagið. Samkvæmt erlendum miðlum var Dennis Bo Jensen sem klásúlu í nýja samningi sínum að hann gæti rift samningnum áður en hann tekur gildi, 1.júlí.

Þjálfarinn virðist hafa nýtt sér þá klásúlu.

„Við gerðum að sjálfsögðu allt sem í okkar valdi stóð til að halda Dennis Bo Jensen áfram í starfi aðalþjálfara, en það reyndist ekki mögulegt að breyta ákvörðun hans. Tímasetningin er langt frá því að vera ákjósanleg,“ sagði Ian Marko Fog, framkvæmdastjóri Mors-Thy.

Hann sagði jafnframt að félagið teldi ekki skynsamlegt að neyða þjálfarann til að vera áfram gegn vilja sínum.

„Við teljum að það myndi ekki gagnast hvorki liðinu né félaginu að halda honum hér gegn hans vilja. Því höfum við ákveðið að verða við ósk hans og leysa hann undan samningi,“ bætti Fog við.

Þrátt fyrir brotthvarf Jensens segist félagið horfa bjartsýnt til komandi leiktíðar. Þar er sérstaklega bent á aðstoðarþjálfarann Henrik Tilsted sem mikilvægan hluta af framtíðaráformum félagsins.

„Við horfum engu að síður fram á veginn með mikilli bjartsýni. Við erum með afar sterkan leikmannahóp og það veitir okkur öryggi að hafa einn efnilegasta þjálfara Dana, Henrik Tilsted, áfram á samningi. Nú hefst vinna við að finna sterkasta mögulega þjálfarateymið í kringum hann,“ sagði Fog.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top