Eftir eitt tímabil í Hafnarfirðinum með FH er ljóst að Birkir Benediktsson leikur ekki áfram með félaginu en hann gerði eins árs samning við FH síðasta sumar eftir eins árs dvöl hjá Wakunaga í Japan. Birkir Benediktsson hafði fyrir veru sína hjá Wakunaga í Japan leikið allan sinn feril hjá uppeldisfélagi sínu Aftureldingu. Birkir skoraði 84 mörk fyrir FH í Olís-deildinni og úrslitakeppninni en liðið endaði í 2.sæti deildarinnar og tapaði í oddaleik úrslitaeinvígisins gegn Val. Birkir sagði í samtali við Handkastið að það væri ekki komið alveg á hreint hvað tæki við hjá sér. Hann var ekki tilbúinn að segjast vera búinn að leggja skóna á hilluna og væri að skoða sín mál. Birkir sem varð þrítugur í síðasta mánuði var fyrr á þessu ári orðaður við HK og þá hefur hann einnig verið orðaður við nýliða Víkings. Birkir lék á sínum yngri árum með yngri landsliðum Íslands og var á sínum tíma ein öflugasta skytta landsins.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.