Þýska stórveldið THW Kiel hefur samkvæmt fréttum þýskra fjölmiðla ákveðið að segja upp samningi Filip Jicha þjálfara liðsins eftir vonbrigðatímabil. Samkvæmt Kieler Nachrichten var ákvörðunin tekin um helgina en jafnframt er talið að félagið hafi þegar fundið líklegan arftaka. Sá sem er talinn líklegastur til að taka við af Jicha er norski þjálfarinn Börge Lund, sem stýrir nú Elverum í Noregi. Lund lék sjálfur með Kiel á árunum 2007 til 2010 og hefur verið orðaður við starfið undanfarna daga. Elverum urðu deildarmeistarar í Noregi en töpuðu í undanúrslitum í úrslitakeppninni í Noregi gegn Drammen. THW Kiel hefur ekki staðfest tíðindin opinberlega, en samkvæmt fréttum er boðað til blaðamannafundar síðar í dag þar sem búist er við að framtíð Jicha verði skýrð. Jicha, sem er 44 ára gamall og fyrrverandi leikmaður félagsins, átti samkvæmt samningi að vera við stjórnvölinn til ársins 2028. Samningur hans var raunar framlengdur síðasta haust. Kiel hafnaði í 6. sæti þýsku Bundesligunnar og missti þar með af Evrópukeppni í fyrsta sinn í 33 ár. Þá hefur félagið nú þrjú ár í röð ekki náð að tryggja sér sæti í Meistaradeild Evrópu, sem hefur haft veruleg fjárhagsleg áhrif á félagið. Liðið tapaði auk þess í úrslitaleik Evrópudeildarinnar gegn MT Melsungen en sigur í þeirri keppni gaf sæti í Meistaradeild Evrópu. Undir stjórn Jicha varð félagið þrívegis þýskur meistari, vann Meistaradeild Evrópu einu sinni og fagnaði einnig sigri í þýska bikarnum í tvígang. Ef Börge Lund tekur við starfinu verður það hans fyrsta verkefni hjá þýsku stórliði sem aðalþjálfari.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.