Slóvenski leikmaðurinn Blaz Janc hefur framlengt samning sinn við FC Barcelona. Janc gerir samning við Barcelona til ársins 2030. Koma tíðindin mörgum á óvart en Blaz Janc hefur undanfarna mánuði verið orðaður við Slovan í heimalandinu sínu. Janc hefur verið lykilmaður í liði Barcelona frá því hann gekk til liðs við félagið árið 2020. Á þeim tíma hefur hann unnið fjölda titla með félaginu, þar á meðal spænska meistaratitla og Meistaradeild Evrópu nú síðast í þessum mánuði. Næsta sumar yfirgefur Dika Mem Barcelona og gengur í raðir Füchse Berlin. Það að Blaz Janc hafi tekið þá ákvörðun að framlengja samningi sínum við Barcelona til 2030 er jákvæðar fréttir fyrir félagið sem á enn eftir að tilkynna hver verður eftirmaður Dika Mem í hægri skyttunni hjá félaginu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.