Bjerringbro-Silkeborg ræður þjálfara Mors-Thy
Bjerringbro-Silkeborg

Danska úrvalsdeildarfélagið Bjerringbro-Silkeborg hefur ráðið Dennis Bo Jensen sem nýjan aðalþjálfara liðsins. Hinn 39 ára gamli þjálfari kemur til félagsins frá Mors-Thy Håndbold og hefur skrifað undir þriggja ára samning sem tekur gildi 1. júlí.

Í apríl gerði Dennis nýjan samning við Mors-Thy sem var með uppsagnarákvæði að hann gæti rift samningi sínum áður en nýi samningurinn tæki gildi 1.júlí. Auk þess þurfti Bjerringbro-Silkeborg að borga Mors-Thy fyrir að fá Dennis Bo Jenssen til sín.

Peter K. Bertelsen, íþróttastjóri Bjerringbro-Silkeborg, segir félagið afar ánægt með að hafa fengið einn af áhugaverðustu þjálfurum dansks handbolta til starfa.

„Dennis hefur sýnt hjá Mors-Thy að hann getur þróað bæði leikmenn og lið. Hann stendur einnig fyrir þeim leikstíl sem við viljum sjá hjá Bjerringbro-Silkeborg,“ sagði Bertelsen í tilkynningu félagsins.

Jensen hefur vakið athygli fyrir störf sín hjá Mors-Thy. Sjálfur segir hann ákvörðunina hafa verið eðlilegt næsta skref á ferlinum.

„Þegar mér var kynnt framtíðarsýn félagsins, metnaðurinn og hugmyndirnar um hvernig handbolta ætti að spila, fann ég strax að þetta hentaði mér vel. Þetta er því eðlilegt næsta skref á mínum ferli,“ sagði Jensen.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top