Norski þjálfarinn Börge Lund hefur verið ráðinn aðalþjálfari þýska stórliðsins, THW Kiel. Börge Lund hefur stýrt norska stórliðinu Elverum frá árinu 2020 skrifaði undir samning sem gildir til 30. júní 2028. Borge Lund verður fjórði þjálfarinn til að stýra Kiel frá árinu 1993 en einungis þrír þjálfarar hafa stýrt félaginu í þessi 33 ár. Zvonimir Serdarušić, Alfreð Gíslason og nú síðast Filip Jicha sem var sagt upp störfum á dögunum eftir slæmt gengi liðsins á síðustu leiktíð þar sem félaginu mistókst að vinna sér þátttökurétt í Evrópukeppni í fyrsta skipti í 33 ár. Lund þekkir vel til hjá félaginu en hann lék með THW Kiel á árunum 2007 til 2010. Framkvæmdastjóri THW Kiel, Viktor Szilagyi, segir Lund vera rétta manninn til að leiða nýtt uppbyggingarskeið hjá félaginu. „Börge hefur unnið frábært starf hjá Elverum undanfarin ár. Hann hefur náð að móta sterkt lið úr blöndu ungra og reyndra leikmanna og hjálpað einstaklingum að taka stór skref í þróun sinni. Hann þekkir félagið, borgina og deildina og veit hvað felst í því að starfa hjá félagi eins og THW Kiel í sterkustu deild heims,“ sagði Szilagyi. Lund segist spenntur fyrir verkefninu og líkir endurkomunni við heimkomu. „Þetta er nánast eins og að koma heim. Árin mín í Kiel voru hápunkturinn á leikmannaferlinum. THW Kiel var og er stærsta handknattleiksfélag í heimi að mínu mati. Nú stendur félagið frammi fyrir nýju upphafi og það er mikill heiður að fá að taka þátt í þeirri vegferð og leggja mitt af mörkum með minni hugmyndafræði og reynslu,“ sagði Lund. Hann bætti við að hann fyndi bæði fyrir ábyrgðinni sem fylgi starfinu og því trausti sem stjórnendur félagsins sýni honum. Börge Lund fæddist í Bodø í Noregi 13. mars 1979. Hann lék á sínum tíma með HSG Nordhorn, Rhein-Neckar Löwen, Füchse Berlin og THW Kiel í þýsku úrvalsdeildinni. Á þremur árum sínum hjá THW Kiel lék hann 137 leiki og skoraði 155 mörk. Með félaginu varð hann þýskur meistari þrisvar sinnum, vann þýska bikarinn tvisvar, þýska Ofurbikarinn tvisvar, Champions Trophy árið 2007 og Meistaradeild Evrópu árið 2010. Lund lék alls 216 landsleiki fyrir Noreg og skoraði í þeim 390 mörk. Með norska landsliðinu vann hann meðal annars tvö silfurverðlaun á heimsmeistaramótum. Þjálfaraferill hans hófst með norska landsliðinu þar sem hann var aðstoðarþjálfari á árunum 2017 til 2021. Árið 2020 tók hann við sem aðalþjálfari Elverum og vann norska bikarinn strax á sínu fyrsta tímabili. Undir hans stjórn varð félagið einnig norskur meistari árin 2021 og 2022.Glæsilegur ferill sem leikmaður og þjálfari

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.