Segir Parrondo ekki á leið til PSG í sumar
CHRISTIAN CHARISIUS / dpa Picture-Alliance via AFP)

Íþróttastjóri þýska handknattleiksfélagsins MT Melsungen, Jesper Larsson, vísar því alfarið á bug að þjálfarinn Roberto Garcia Parrondo yfirgefi félagið í sumar, þrátt fyrir orðróm um áhuga franska stórliðsins, Paris Saint-Germain.

Samningur Parrondo við MT Melsungen gildir til 2027 og samkvæmt erlendum miðlum vill PSG fá spænska þjálfarann til liðs við sig eigi síðar en árið 2027 en jafnframt hávær orðrómur hefur verið uppi um það að franska félagið sé að reyna fá hann strax í sumar. Því hafnar Larsson.

„Ég geri 100 prósent ráð fyrir að Roberto verði þjálfari okkar á næsta tímabili. Ég hef hvorki heyrt frá öðrum félögum né frá honum um annað. Roberto er frábær þjálfari. Nú fær hann umbun fyrir starf sitt með því að stýra sínu liði í Meistaradeild Evrópu enn eitt árið," sagði Jesper Larsson við Handball-world.news.

Jaron Siewert tekur við MT Melsungen árið 2027 þegar Parrondo lætur af störfum hjá félaginu. Fram að því mun Siewert starfa sem ráðgjafi og sinna meðal annars leikmannaleit og skipulagningu leikmannahópsins.

Larsson segir að ráðning nýs þjálfara hafi verið eitt af fyrstu stóru verkefnum sínum eftir að hann tók við starfi íþróttastjóra. Strax í febrúar hafi legið fyrir að Parrondo myndi ekki framlengja samning sinn við Melsungen.

Í lok mars hafði Larsson samband við Siewert í fyrsta sinn. Alls voru fimm nöfn á lista hans.

„Jaron hefur þegar sýnt hjá Füchse Berlin að hann hefur einstaklega gott lag á að þróa unga hæfileikamenn,“ segir Larsson.

Félagið vann nýverið Evrópudeildina og leikur í Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili í fyrsta skipti í sögu félagsins.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top