Sarah Bouktit og Emil Nielsen bestu leikmenn tímabilsins
MARIUS BECKER / AFP

Franska línumanninum Sarah Bouktit og danska landsliðsmarkverðinum Emil Nielsen voru í dag veitt MVP-verðlaun Evrópska handknattleikssambandsins (EHF) sem bestu leikmenn tímabilsins 2025/26.

Við sama tilefni voru þau Lylou Borg og Francisco „Kiko“ Costa valin efnilegustu leikmenn ársins. 

Bouktit, sem leikur með Metz Handball, átti stóran þátt í því að félagið vann Meistaradeild Evrópu í fyrsta sinn í sögu félagsins. Hún skoraði 20 mörk í úrslitahelginni og varð næstmarkahæst í keppninni á tímabilinu. Þá var hún valin í stjörnulið heimsmeistaramótsins í desember eftir að hafa leitt Frakkland til bronsverðlauna. 

Attila KISBENEDEK / AFP
(Photo by Attila KISBENEDEK / AFP)

Emil Nielsen, markvörður Barcelona og danska landsliðsins, hlaut verðlaunin í annað sinn á ferlinum, en hann var einnig valinn verðmætasti leikmaðurinn árið 2024. Nielsen varð Evrópumeistari með Danmörku fyrr á árinu og átti lykilþátt í sigri Barcelona í Meistaradeild Evrópu. Hann er jafnframt eini karl leikmaðurinn sem nú er ríkjandi Evrópu-, heims- og Ólympíumeistari auk þess að vera Evrópumeistari félagsliða. 

Í flokki efnilegustu leikmanna ársins varð Lylou Borg, miðjumaður Metz og franska landsliðsins, hlutskörpust hjá konunum. Borg gekk til liðs við Metz fyrir tímabilið og festi sig fljótt í sessi sem lykilleikmaður á leið liðsins til Evrópumeistaratitils. 

Attila KISBENEDEK / AFP
Photo by Attila KISBENEDEK / AFP)

Portúgalska hægri skyttan Francisco „Kiko“ Costa, sem leikur með Sporting, var valinn efnilegasti karl leikmaður tímabilsins. Costa skoraði 136 mörk í Meistaradeildinni, næstflest allra leikmanna og var einnig valinn efnilegasti leikmaður Evrópumóts karla 2026, þar sem hann hlaut einnig sæti í úrvalsliði mótsins. 

ANDRZEJ IWANCZUK / NurPhoto via AFP
(Photo by ANDRZEJ IWANCZUK / NurPhoto via AFP)

Verðlaunin fyrir efnilegustu leikmennina eru veitt leikmönnum sem eru 21 árs eða yngri.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top