Siewert vill breyta leikstíl Melsungen
MT Melsungen

Jaron Siewert tekur ekki við sem aðalþjálfari MT Melsungen fyrr en sumarið 2027, en Þjóðverjinn er þegar byrjaður að móta framtíðarsýn sína fyrir félagið. Í viðtali við handball-world segir hann að Melsungen hafi frá upphafi verið hans fyrsti kostur og að hann vilji byggja upp lið sem blandar saman ungum efnilegum leikmönnum og heimsklassa stjörnum.

„Þegar ég fylgdist með öllum liðunum í Bundesligunni varð Melsungen fljótt mitt uppáhalds. Félagið hefur ekki unnið jafn marga stóra titla og önnur stórlið og því er gleðin yfir sigrunum enn einlægari,“ sagði Siewert.

Hann segir einnig að í viðræðum við félagið hafi fljótt komið í ljós að Melsungen vilji leggja meiri áherslu á þróun ungra leikmanna í framtíðinni. „Mér finnst spennandi að blanda saman innlendum og erlendum efnilegum leikmönnum við heimsklassa leikmenn. Það er sú leið sem við viljum fara saman.“

Siewert viðurkennir að það hafi verið sérstök ákvörðun að bíða heilt ár eftir því að taka við liðinu, en hann telur það vera kost. „Ég get nú þegar komið að uppbyggingu leikmannahópsins fyrir árið 2027 og kynnst starfsemi félagsins. Ég lít því á þetta sem jákvætt.“

Hann segir jafnframt að það hafi heillað hann að fá tækifæri til að byggja upp eigið verkefni frekar en að halda einfaldlega áfram á sömu braut og forveri hans, Roberto García Parrondo. „Ég var að leita að áskorun þar sem ég gæti innleitt minn eigin leikstíl. Auðvitað verður hann þó alltaf sniðinn að styrkleikum leikmannanna en ekki öfugt.“

Þegar Siewert er spurður hvernig hann vilji sjá Melsungen spila er svarið skýrt. „Ég stend fyrir nútímalegum og hröðum handbolta.“

Hann segir að hans hugmyndafræði verði frábrugðin þeirri sem einkennt hefur lið Parrondo undanfarin ár. „Ég vil sjá meiri hraða og fjölbreytni í sóknarleiknum þegar spilað er sex á sex. Við munum ekki byggja jafn mikið á sjö á sex leik.“

Siewert leggur þó áherslu á að sterkur varnarleikur verði áfram grunnurinn að öllu. „Án góðrar varnar er ekki hægt að spila góðan hraðaupphlaupshandbolta. Við ætlum að leggja grunninn í vörninni og spila síðan hraðar fram á við.“

Þrátt fyrir að vera ekki formlega tekinn við sem þjálfari er Siewert þegar kominn að uppbyggingu félagsins. Hann vinnur meðal annars með Finn Lemke, yfirmanni unglingastarfs Melsungen, að því að efla starf félagsins á Kassel-svæðinu og skapa betri aðstæður fyrir unga leikmenn. Þá vinnur hann einnig að því að finna samstarfsfélög, bæði innan Þýskalands og erlendis, sem geti hjálpað ungum leikmönnum að þróast enn frekar.

Siewert vill ekki setja nákvæma tímalínu á markmið félagsins, en segir metnaðinn vera skýran. „Þetta félag hefur metnað til að berjast um titla. Markmið okkar er að verða eitt af stærstu félögum Þýskalands.“

Hann bendir þó á að slíkt gerist ekki á einni nóttu. „Það er erfitt að verða eitt af tveimur bestu liðum Þýskalands á skömmum tíma, jafnvel þótt það sé ekki útilokað. Fyrsta markmiðið er að festa Melsungen í sessi meðal fimm eða sex bestu liða Bundesligunnar.“

Með Evrópudeildartitilinn í farteskinu og nýja framtíðarsýn virðist því ljóst að Melsungen ætlar sér stór hlutverk á næstu árum undir stjórn Jaron Siewert.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top