Gæti handboltinn færst yfir á Vetrarólympíuleikana?
(Kristinn Steinn Traustason)

Handboltinn hefur verið fastur liður á Ólympíuleikunum frá árinu 1972, en framtíð íþróttarinnar á stærsta íþróttaviðburði heims er ekki sjálfgefin. Nýjar áherslur Alþjóðaólympíunefndarinnar (IOC) hafa ýtt undir umræðu um stöðu handboltans og jafnvel hvort íþróttin gæti í framtíðinni færst yfir á Vetrarólympíuleikana.

Á 146. þingi Alþjóðaólympíunefndarinnar samþykktu fulltrúar einróma nýtt fyrirkomulag við val á íþróttagreinum fyrir Ólympíuleikana frá og með Brisbane 2032. Þar verður meðal annars lögð meiri áhersla á kynjajafnrétti, alþjóðlegt aðdráttarafl, sjálfbærni og kostnað.

Jafnframt hefur Alþjóðaólympíunefndin ítrekað að Ólympíuleikarnir geti ekki haldið áfram að stækka endalaust. Á leikunum í París árið 2024 tóku um 10.500 íþróttamenn þátt og hefur forseti Alþjóðaólympíunefndarinnar, Kirsty Coventry, lagt áherslu á að þátttakendum fjölgi ekki frekar.

Handboltinn uppfyllir ýmis skilyrði sem Alþjóðaólympíunefndin leggur áherslu á. Keppni karla og kvenna er jafn stór og keppnin fer fram í fjölnota íþróttahúsum sem nýtast áfram eftir leikana.

Stærsta áskorunin fyrir handboltann er hins vegar alþjóðlegt aðdráttarafl.

Evrópskar þjóðir hafa nánast einokað verðlaunasæti bæði á heimsmeistaramótum og Ólympíuleikum undanfarin ár. Í karlaflokki er Katar eina liðið utan Evrópu sem hefur unnið verðlaun á HM á síðustu árum, þegar liðið varð í öðru sæti á heimavelli árið 2015.

Í kvennaflokki hafa aðeins Suður-Kórea og Brasilía tekist að verða heimsmeistarar utan Evrópu, en frá árinu 2008 hafa öll Ólympíuverðlaun farið til Evrópu og frá 2015 hafa öll verðlaunasæti á heimsmeistaramótum einnig verið í eigu evrópskra þjóða.

Þessi þróun hefur orðið til þess að Alþjóðaólympíunefndin horfir í auknum mæli til þess hvort handboltinn hafi nægilega sterka stöðu á heimsvísu.

Nýja fyrirkomulag Alþjóðaólympíunefndarinnar gerir auðveldara að breyta dagskrá leikanna og hefur það vakið upp vangaveltur um hvort sumaríþróttir sem ekki eru háðar veðri gætu í framtíðinni færst yfir á Vetrarólympíuleikana.

Handbolti hefur verið nefndur í því samhengi. Á Vetrarólympíuleikum eru aðeins íshokkí og krullukeppni með hefðbundnu mótafyrirkomulagi fyrir lið, á meðan handboltinn hefur lengi vonast til að bæta strandhandbolta við dagskrá Sumarólympíuleikanna.

Kirsty Coventry hefur þó þegar staðfest að Vetrarólympíuleikarnir árið 2030 í frönsku Ölpunum verði eingöngu skipaðir greinum sem fara fram á snjó eða ís.

Hvað gerist eftir það er óljóst.

Eitt er þó ljóst samkvæmt nýrri stefnu Alþjóðaólympíunefndarinnar, engin íþrótt getur gengið að Ólympíusæti sínu vísu til framtíðar og allar greinar þurfa áfram að sanna mikilvægi sitt og alþjóðlegt aðdráttarafl til að halda sæti sínu á stærsta íþróttaviðburði heims.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top