Renars Uscins heimsótti Ísland
Harry Langer / AFP

Þýski landsliðsmaðurinn og hægri skytta Hannover Burgdorf, Renars Uscins heimsótti Íslands um daginn ef marka má Instagram reikning hans.

Renars virðist hafa haldið sig á Suðurlandi og heimsótti meðal annars Geysi, Seljalandsfoss, Kerið og fleiri staði.

Hann skellti sér einnig í hvalaskoðun og fékk eitthvað fyrir peninginn þar.

Alfreð Gíslason, landsliðsþjálfari Þýskalands, var ánægður með þessa heimsókn Uncins og skrifaði athugasemd við færsluna hjá honum og sagði að hann myndi byrja inná í næsta landsleik eftir þessa heimsókn.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top