Tíu vinsælustu fréttirnar frá upphafi
Eyjólfur Garðarsson

Í dag fagnar vefsíða Handkastsins eins árs afmæli. Á þessu fyrsta starfsári hefur síðan fest sig í sessi sem öflugur miðill fyrir íslenskt handboltaáhugafólk með fjölbreyttri umfjöllun um íslenskan og erlendan handknattleik.

Frá opnun síðunnar hafa birst rúmlega 6.100 frétta um allt það helsta sem gerst hefur í handboltaheiminum. Viðtökurnar hafa verið framar vonum og lesendur hafa heimsótt síðuna í síauknum mæli.

Í tilefni af afmælinu ákváðum við að líta aðeins um öxl og taka saman þær fréttir sem vöktu mesta athygli. Hér að neðan má finna tíu vinsælustu fréttir Handkastsins frá því síðan fór í loftið fyrir ári síðan.

Við viljum um leið þakka öllum lesendum fyrir stuðninginn á fyrsta árinu. Án ykkar væri Handkastið ekki það sem það er í dag og við hlökkum til að halda áfram að flytja ykkur fréttir úr heimi handboltans um ókomin ár.

Hér má sjá tíu vinsælustu fréttir Handkastsins frá upphafi:

  1. KÁRI KRISTJÁN MUN ALDREI KLÆÐAST TREYJU ÍBV AFTUR
  2. FORDÓMAFULL UMMÆLI STUÐNINGSMANNA ÍBV Í GARÐ HAFDÍSAR
  3. MISSTI MÓÐUR SÍNA – FÉKK HVORKI SÍMTAL NÉ SKEYTI FRÁ STJÓRNENDUM ÍBV
  4. SAMNINGI AGNARS SMÁRA RIFT
  5. MEIDDIST ALVARLEGA VIÐ TÖKUR Á SAMFÉLAGSMIÐLAEFNI Á VEGUM HSÍ
  6. ÁSTARMÁL LEIKMANNA HAFA TRUFLAÐ UNDIRBÚNINGSTÍMABILIÐ
  7. VANHUGSAÐ AÐ LÁTA OKKUR Í ÞESSAR AÐSTÆÐUR
  8. SITUR Í MÉR AÐ VERA EKKI KVÖDD BETUR AF ÍBV
  9. SJÁÐU LOKAMÍNÚTUNA ÞEGAR ALLT VARÐ VITLAUST Í EYJUM
  10. DÓMARARNIR FENGU LÖGREGLU FYLGD Í HERJÓLF – HÓTAÐ LÍFLÁTI

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top