Franska stórliðið Paris Saint-Germain hefur staðfest að Spánverjinn Roberto Garcia Parrondo taki við sem aðalþjálfari félagsins frá og með tímabilinu 2027/28. Með ráðningunni er jafnframt ljóst að Daninn Stefan Madsen mun láta af störfum eftir komandi tímabil eftir tvö ár í brúnni. Parrondo kemur til félagsins með glæsilegan feril að baki. Hann stýrði RK Vardar til sigurs í Meistaradeild Evrópu árið 2019 og var síðar landsliðsþjálfari Egyptalands, þar sem hann fagnaði sigri á Afríkumótinu árin 2020 og 2022. Frá árinu 2021 hefur hann verið við stjórnvölinn hjá þýska liðinu MT Melsungen. Undir hans stjórn hefur félagið fest sig í sessi meðal sterkustu liða þýsku Bundesligunnar en liðið vann Evrópudeildina á dögunum eftir sigur á THW Kiel í úrslitaleik keppnininnar. MT Melsungen leikur í riðlakeppni Meistaradeildarinnar á næstu leiktíð í fyrsta skipti í sögu félagsins. Thierry Omeyer, framkvæmdastjóri PSG, segist afar ánægður með ráðninguna. „Við erum mjög ánægð með að bjóða Roberto Garcia Parrondo velkominn til Paris Saint-Germain. Reynsla hans, metnaður og þekking á handbolta á hæsta stigi verða félaginu dýrmæt þegar nýr kafli hefst.“ Omeyer segir jafnframt að Parrondo hafi ítrekað sýnt á ferli sínum að hann geti þróað lið og leitt þau til árangurs. „Við erum sannfærð um að koma hans muni hjálpa félaginu að halda áfram þróun sinni og baráttunni um titla.“ Parrondo segist sjálfur hlakka til verkefnisins í frönsku höfuðborginni. „Það er mikill heiður að fá tækifæri til að stýra Paris Saint-Germain. Þetta er eitt af stærstu félögum Evrópu með mikinn metnað, sterka sjálfsmynd og háar kröfur.“ Hann segir starfið fela í sér mikla ábyrgð en jafnframt vera spennandi áskorun. „Ég hlakka til að vinna með leikmönnunum, þjálfarateyminu og öllu félaginu að því að halda áfram að skrifa sögu Paris Saint-Germain.“

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.