Íslandsvinur gengur í raðir PSG
PSG

Þýski landsliðsmaðurinn og Íslandsvinurinn, Renars Uscins hefur skrifað undir samning við Paris Saint-Germain og gengur hann til liðs við franska stórveldið fyrir tímabilið 2027/2028. Samningur hans gildir til sumarsins 2029.

Uscins, sem er 23 ára gömul hægri skytta gengur í raðir PSG frá þýska félaginu TSV Hannover-Burgdorf. Hann hefur fest sig í sessi sem lykilmaður í þýska landsliðinu og var valinn besta hægri skyttan á Ólympíuleikunum í París árið 2024, þar sem Þjóðverjar unnu silfurverðlaun.

Í tilkynningu PSG segir framkvæmdastjórinn, Thierry Omeyer að félagið sé afar ánægt með að fá Uscins til liðs við sig.

„Þrátt fyrir ungan aldur hefur hann þegar sýnt gæði sín bæði í Bundesligunni og með þýska landsliðinu. Hann er nútímalegur leikmaður sem getur haft áhrif á leikinn á báðum endum vallarins og passar fullkomlega inn í framtíðarsýn félagsins,“ sagði Omeyer.

Uscins kvaðst jafnframt spenntur fyrir nýju verkefni. „Að ganga til liðs við Paris Saint-Germain er stórt skref á mínum ferli. Þetta er eitt stærsta félag Evrópu með mikinn metnað og sigursögu. Ég hlakka til að hitta nýju liðsfélagana og leggja mitt af mörkum til að hjálpa félaginu að ná markmiðum sínum,“ sagði hann.

Renars Uscins var hér á landi á dögunum í ferðalagi og birti myndir af því á samfélagsmiðlum sínum.

Renars Uscins heimsótti Ísland.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top