Vill fara frá Fram stuttu eftir að hafa framlengt samningi sínum
Sævar Jónasson

Eiður Rafn Valsson er samkvæmt heimildum Handkastsins á leið frá Fram eftir að hafa óskað eftir því að fá að yfirgefa félagið.

Samkvæmt heimildum Handkastsins fór Eiður fram á það á fundi með stjórn handknattleiksdeildar Fram að fá að fara frá félaginu vegna persónulegra ástæðna.

Eiður áfram í Fram

Eiður Rafn, sem er örvhentur hægri hornamaður, hefur leikið allan meistaraflokksferil sinn með Fram og verið fastamaður í liðinu undanfarin ár. Ekki er nema rúmlega tveir mánuðir síðan Eiður Rafn framlengdi samningi sínum við Fram til ársins 2029 og því koma þessi tíðindi verulega á óvart.

Stuttu eftir fund Eiðs við Fram hafði Ágúst Bjarni Garðarsson, formaður handknattleiksdeildar FH, samband við forráðamenn Fram og lýsti yfir áhuga á að fá Eið til félagsins. Á dögunum gekk frændi Eiðs, Einar Rafn Eiðsson til liðs við félagið frá KA.

Handkastið hefur ekki heyrt af því hvort FH hafi lagt fram kauptilboð í leikmanninn en FH missti á dögunum Birgi Má Birgisson út í atvinnumennsku og þá hefur samningur Birkis Benediktssonar runnið út við félagið.

Á nýliðnu tímabili var Eiður Rafn fimmti markahæsti leikmaður Fram með 63 mörk í deild og úrslitakeppni. Fram hafnaði í 7. sæti deildarinnar og féll úr leik í 8-liða úrslitum úrslitakeppninnar eftir tap gegn FH.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top