Þýski landsliðsmaðurinn Renars Uscins mun ganga til liðs við Paris Saint-Germain sumarið 2027. Félagaskiptin voru staðfest miðvikudaginn 1. júlí og hefur hinn 24 ára gamli leikmaður skrifað undir tveggja ára samning sem gildir til ársins 2029. Uscins yfirgefur þar með TSV Hannover-Burgdorf eftir að hafa fest sig í sessi sem einn af lykilmönnum liðsins og þýska landsliðsins. „Ég er gríðarlega spenntur fyrir því að flytja til Parísar,“ sagði Uscins í viðtali við PSG TV. „Ný upplifun bíður mín, ný menning og nýtt land, en einnig tækifærið til að spila fyrir stærsta félag í heimi.“ Þjóðverjinn segist hafa orðið hrifinn af aðstöðunni hjá franska stórliðinu. „Þegar ég kom hingað var ég mjög hrifinn af allri aðstöðunni. Allt er einstaklega faglegt og miðast við að hjálpa leikmönnum að þróast bæði innan vallar og utan. Þetta er nákvæmlega það umhverfi sem maður vill vera í.“ Uscins segir að félagaskiptin séu jafnframt tækifæri til að takast á við nýjar áskoranir. „Fyrir handknattleiksmann er það draumur að fá samning hjá félagi eins og Paris Saint-Germain.“ Ein stærsta ástæða félagaskiptanna er þó metnaður hans til að leika í Meistaradeild Evrópu. Hjá PSG má nánast gera ráð fyrir þátttöku í keppninni á hverju ári. „Ég vil skilja eftir mig spor í sögu félagsins. Paris Saint-Germain hefur aldrei unnið Meistaradeildina og það er einn stærsti draumur minn eftir að ég ákvað að ganga til liðs við félagið – að ná því sem félagið hefur aldrei áður afrekað.“ Annað sem gæti hafa haft áhrif á ákvörðunina er álagið. Franska deildin er almennt talin minna krefjandi en þýska Bundesligan og Uscins hefur undanfarin ár borið mikið ábyrgðarhlutverk bæði hjá Hannover-Burgdorf og þýska landsliðinu. Með félagaskiptunum fær Uscins því ekki aðeins tækifæri til að spila með einu stærsta liði Evrópu heldur einnig raunhæfan möguleika á að berjast um þann titil sem hann segir vera stærsta markmið sitt – Meistaradeild Evrópu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.