Danski þjálfarinn Stefan Madsen var í dag kynntur sem þjálfari danska félagsins HØJ Elite en hann tekur við liðinu næsta sumar þegar samningi hans við franska stórliðið Paris Saint-Germain rennur út. Stefan Madsen segir ráðningu sína hjá HØJ Elite vera nákvæmlega það verkefni sem hann hafði í huga þegar hann ákvað að snúa aftur til þjálfunar í dönskum handknattleik. Í samtali við heimasíðu HØJ Elite segir Madsen að það hafi ekki aðeins verið þjálfarastaðan sem heillaði hann heldur einnig metnaðarfull framtíðarsýn félagsins. „Ég hef átt afar góð samtöl við forsvarsmenn HØJ Elite og finn að þar er öflugt starf samhliða skýrum metnaði til að byggja upp sterkt afreksumhverfi sem getur keppt við bestu lið Danmerkur,“ sagði Madsen. „Félagið hefur verið byggt upp af góðu og heiðarlegu fólki með sterk og heilbrigð gildi, sem skiptir mig miklu máli. Ég tel að þar sé mikill möguleiki til staðar og hlakka til að taka þátt í þeirri uppbyggingu.“ HØJ Elite féll úr dönsku úrvalsdeildinni að loknu síðasta tímabili en hefur þegar hafið umfangsmikla uppbyggingu með það að markmiði að vinna sér sæti á ný meðal þeirra bestu. Madsen telur að grunnurinn sé þegar orðinn sterkur. „Það hefur þegar verið lagður traustur grunnur með leikmannahópi sem, með mikilli vinnu og góðri liðsheild, getur náð þeim markmiðum sem félagið hefur sett sér. Ég hlakka til að leggja mitt af mörkum.“ Að hans sögn er verkefnið hjá HØJ Elite einmitt af þeirri gerð sem hann leitaði að ef hann ætti að snúa aftur til Danmerkur. „Ég lít á þetta sem afar spennandi verkefni. Þetta er nákvæmlega sú tegund verkefnis sem ég sá fyrir mér ef ég ætti að snúa aftur í danskan handknattleik,“ sagði Madsen. Þangað til Madsen tekur við liðinu næsta sumar verður Nicolaj Andersson við stjórnvölinn sem aðalþjálfari liðsins en Andersson verður síðan aðstoðarþjálfari liðsins þegar Madsen mætir frá París. Nicolaj Andersson er bróðir Lasse Andersson sem gengur í raðir félagsins í sumar frá Füchse Berlin.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.