Danska 1.deildarfélagið HØJ er sagt hafa mikinn áhuga á að fá sænska landsliðsmanninn Jim Gottfridsson í sínar raðir. Þetta segir handboltamiðillinn RT Handball, sem greinir einnig frá því að þýska félagið Rhein-Neckar Löwen sé í kapphlaupinu um leikmanninn. HØJ er að leita að arftaka Axels Månsson, sem hafði áður samið við félagið. Hann nýtti sér hins vegar ákvæði í samningi sínum til að rifta honum eftir óvænt fall HØJ úr dönsku úrvalsdeildinni og gekk í kjölfarið til liðs við Skjern. Samkvæmt RT Handball er Jim Gottfridsson nú einn helsti kostur félagsins til að fylla það skarð. Hinn 33 ára gamli leikstjórnandi hefur verið án félags síðan samningi hans við Pick Szeged var rift í apríl. Þar áður lék hann í tólf tímabil með SG Flensburg-Handewitt, þar sem hann festi sig í sessi sem einn besti leikstjórnandi heims. RT Handball greinir frá því á Instagram að bæði HØJ og Rhein-Neckar Löwen hafi mikinn áhuga á að fá Gottfridsson. Rhein Neckar Löwen var sagt á eftir landsliðsmanninum íslenska, Elvari Erni Jónssyni en allt bendir til þess að Elvar yfirgefi ekki Magdeburg fyrr en eftir næsta tímabil.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.