Lykilmenn hefja undirbúningstímabilið á meiðslalistanum
Erlangen

Nokkur stór nöfn í þýsku Bundesligunni hefja undirbúning fyrir komandi tímabil með óvissu um líkamlegt ástand sitt. Þetta kemur fram hjá Handball-World.

Meðal þeirra sem eru að vinna sig til baka eftir meiðsli eru Viggó Kristjánsson, Emil Madsen, Elias Ellefsen á Skipagøtu, Fabian Wiede og Luca Witzke. Hjá flestum þeirra liggur ekki enn fyrir hvenær þeir verða tilbúnir til keppni.

Viggó Kristjánsson missti af síðustu níu leikjum Erlangen á síðasta tímabili vegna hnémeiðsla og gekkst hann undir aðgerð hér á landi undir lok tímabilsins. Samkvæmt Handball-World liggur ekki fyrir hvernig bataferli Viggós gengur. Framundan er síðasta tímabil hans hjá Erlangen áður en hann gengur til liðs við SG Flensburg-Handewitt.

Daninn Emil Madsen er einnig á batavegi eftir hnéaðgerð sem hélt honum frá keppni nær allt síðasta tímabil með THW Kiel. Hann stefnir nú á endurkomu og hefur jafnframt skipt um treyjunúmer úr 45 í 11.

„Ég sný ekki aftur fyrr en ég er tilbúinn og kominn í 100% form. Nú þarf ég einfaldlega að sjá hvernig undirbúningurinn gengur,“ sagði Madsen við Handball-World.

Liðsfélagi hans hjá Kiel, Elias Ellefsen á Skipagøtu, hefur einnig verið frá vegna axlarmeiðsla. Færeyingurinn var í frábæru formi áður en meiðslin tóku sig upp og enn er óvíst hvort hann verði klár þegar undirbúningstímabilið hjá Kiel undirstjórn Börge Lund hefst.

Hjá Füchse Berlin er vonast til þess að Fabian Wiede verði leikfær þegar tímabilið hefst. Hann sleit krossband í Meistaradeildarleik gegn Veszprém í lok október á síðasta ári en endurhæfingin hefur gengið samkvæmt áætlun.

Staðan hjá Luca Witzke hjá Flensburg er enn óljós. Þýski landsliðsmaðurinn náði aðeins að spila fimm deildarleiki á síðasta tímabili áður en þrálát axlarmeiðsli settu strik í reikninginn og jafnframt hafa verið uppi vangaveltur um framtíð hans hjá félaginu.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top