Ótímabær spá fyrir Olís deild kvenna
Sævar Jónasson

Handkastið heldur áfram að hita upp fyrir Olís-deild kvenna tímabilið 2026/2027 og hefur fengið einn af sérfræðingum sínum, Einar Inga Hrafnsson til að sjóða saman í ótímabæra spá.

Þetta er fyrsta ótímabæra spáin fyrir næsta tímabil en tímabilið í Olís-deild kvenna hefst í upphafi september mánaðar. Fjölgað hefur verið um tvö lið í Olís-deild karla frá síðustu leiktíð og því verða 10 lið sem leika í deild þeirra bestu á næstu leiktíð.

Gefum Einari Inga Hrafnssyni orðið:

Nú er komið að stelpunum og Olís-deild kvenna, þar sem ætla má að við fáum meiri spennu og jafnari deild en undafarin ár.

Úrslitaeinvígið á síðasta tímabili voru ákveðin vonbrigði fyrir hinn almenna stuðningsmann kvennaboltans. Fyrirfram mátti búast við jöfnu og spennandi einvígi hjá Val og ÍBV í barráttunni um Íslandsmeistaratitilinn, þar sem meiðsli og forföll höfðu verið að elta lið Vals í lengri tíma og ungar og óreyndar stelpur komnar á stóra sviðið 1-2 árum fyrr en áætlað var. Á meðan lið ÍBV var að vaxa, Birna Berg að toppa á réttum tíma og Sandra frábær, sem og að aukaleikararnir í Eyjum virtust á mjög góðum stað.

En þetta Valsliðið, sem var keyrt áfram af stórkostlegri Lovísu Thompson og Hafdísi í markinu gaf ekkert eftir. Með ungu stelpurnar dansandi í kringum þessar tvær stórstjörnur fékk liði ÍBV aldrei trú og vann Valur að lokum nokkuð sannfærandi þrjá leiki af fjórum og Íslandsmeistaratitilinn. Lið ÍBV virkaði þreytt í úrslitaeinvíginu eftir hörku einvígi gegn Haukum þar sem úrslitin réðust í oddaleik og í tvíframlengingu, og má segja að meiðsli Amalie Froland í oddaleiknum í undanúrslitunum hafi drepið trú liðsins á að geta sigrað Val í úrslitaeinvíginu.

Það er nokkuð ljóst að liðin í Olísdeild kvenna eru ennþá að styrkja sig. Enn er ómótaðir leikmannahópar hjá mörgum liðum og sumarið á leikmannamarkaðnum innanlands og ekki síður erlendis verður spennandi, og vert að fylgjast með.

Tilkoma Andreu Jacobsen vegur þyngst og setur lið ÍBV á toppinn í fyrstu ótímabæru spá vetrarins, þar sem Valur og Haukar munu keppast um annað sætið og nýliðar HK í nýrri og stærri 10 liða olísdeild kvenna kemst inní 8 liða úrslitakeppni. Á meðan Víkingar falla aftur niður í Grill66-deildina.

Fyrsta ótímabæra spáin fyrir Olís-deild karla 2026/2027:

  1. ÍBV
  2. Haukar
  3. Valur
  4. Fram
  5. Stjarnan
  6. ÍR
  7. KA/Þór
  8. HK
  9. Grótta
  10. Víkingur

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top