Mors Thy hefur ráðið nýjan efnilegan þjálfara
Mors Thy

Danska úrvalsdeildarfélagið Mors-Thy Håndbold hefur gengið frá ráðningu nýs þjálfarateymis. Toni Johansson hefur verið ráðinn aðalþjálfari liðsins eftir að Dennis Bo Jensen lét af störfum á dögunum.

Toni Johansson sem er 36 ára er talinn einn efnilegasti þjálfari Svíþjóðar. Hann hefur stýrt OV Helsingborg undanfarin ár og fór með liðið í undanúrslit og Final4 í sænsku deildinni á síðasta tímabili, þrátt fyrir takmarkað fjármagn. Þá hefur hann unnið tvö Evrópumeistaratitla með sænska U18 landsliðinu.

Honum til halds og trausts verða Henrik Tilsted, sem tekur við stærra hlutverki sem aðstoðarþjálfari og fyrrverandi danski landsliðsmaðurinn Henrik Toft Hansen sem hefur verið ráðinn inn í þjálfarateymið og aðstoðarþjálfari eftir að hafa lagt skóna á hilluna í vor.

Framkvæmdastjóri félagsins, Ian Marko Fog, segir félagið afar ánægt með nýja þjálfarateymið.

„Við erum afar ánægð með að geta kynnt öflugt þjálfarateymi sem gefur okkur bjartsýni fyrir framtíðina. Toni er einn efnilegasti þjálfari Svíþjóðar og hefur sýnt fram á mikinn metnað og hæfni. Með Henrik Tilsted og Henrik Toft Hansen fáum við teymi þar sem fagþekking, metnaður og reynsla fara einstaklega vel saman.“

Þjálfarinn sænski segist hlakka til verkefnisins.

„Ég finn að handboltinn skiptir fólk á Mors og Thy miklu máli og það heillar mig. Ég hef fengið mjög góða tilfinningu fyrir félaginu og hlakka til samstarfsins við Henrik Tilsted og Henrik Toft Hansen. Ég er sannfærður um að við getum byggt upp sterkt lið saman.“

Henrik Toft Hansen segir að það hafi verið auðveld ákvörðun að hjálpa félaginu þegar kallað var eftir því.

„Mors-Thy stendur mér mjög nærri og ég þurfti ekki langan umhugsunarfrest þegar félagið þurfti á mér að halda. Ég tel að við séum með mjög sterkt þjálfarateymi og hlakka til að miðla af reynslu minni til bæði leikmanna og þjálfara.“

Nýja þjálfarateymið gerir tveggja ára samning við félagið.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top