Íslenska U20 ára landslið karla tapaði í dag fyrir Noregi, 31-27, í leik um sæti 9.-16. sæti á Evrópumótinu. Eftir góðan fyrri hálfleik missti íslenska liðið tökin eftir hlé og varð að sætta sig við enn eitt tapið á mótinu. Jafnræði var með liðunum framan af leik en Ísland var þó oftar skrefinu á undan og fór með tveggja marka forskot 14-12, inn í hálfleik. Miðað við gang leiksins hefðu Íslendingar jafnvel getað verið með stærra forskot í hálfleik. Seinni hálfleikurinn reyndist hins vegar afdrifaríkur. Norðmenn náðu fljótt yfirhöndinni og um miðbik hálfleiksins lenti íslenska liðið í algjöru markiþurðarkasti þar sem það skoraði ekki í tæpar tíu mínútur. Á sama tíma fóru fjölmörg góð marktækifæri forgörðum og aðeins frammistaða Alexanders Ásgrímssonar í markinu kom í veg fyrir að norska liðið stingi endanlega af. Þrátt fyrir ágæta tilraun til að minnka muninn undir lokin var það einfaldlega of lítið og of seint. Eftir leikinn var Ágúst Jóhannsson þjálfari afar svekktur með hvernig liðið kom út í seinni hálfleik. „Það er óhætt að segja að þetta hafi verið leikur tveggja hálfleikja. Við spiluðum vel í fyrri hálfleik og leiddum með tveimur mörkum, en við hefðum getað verið meira yfir í hálfleik. Hvernig við komum inn í seinni hálfleikinn reyndist okkur dýrt.“ Ágúst sagði slaka nýtingu dauðafæra hafa reynst íslenska liðinu afdrifaríka. „Við förum með aragrúa af dauðafærum og erum að skjóta í markmanninn hvað eftir annað. Við förum með 16 dauðafæri og það er ótrúlega dýrt. Stór hluti af handbolta er að skora úr færunum sínum, það er ekki nóg að skapa sér færi.“ Þá var hann einnig ósáttur við viðbrögð liðsins á lokakafla leiksins. „Mér fannst hálfgerð uppgjöf síðustu 15 mínútur leiksins. Við hlupum illa til baka, vorum værukærir og áttum í raun ekkert skilið úr þessum leik, því miður.“ Íslenska liðið var án tveggja lykilmanna í leiknum. Stefán Magni Gatason gat ekki tekið þátt vegna veikinda og Elís Þór Árnason sat einnig hjá vegna meiðsla. Ágúst Guðmundsson og Jens Bragi Bergþóruson voru markahæstir í íslenska liðinu með sex mörk hvor. Daníel Montoro og Andri Erlingsson skoruðu þrjú mörk hvor, Harri Halldórsson, Ingvar Dagur Gunnarsson og Magnús Dagur Jónatansson tvö mörk hver og þeir Borgir Leó Stefánsson, Bessi Teitsson og Antoine Óskar Pantano eitt mark hver. Íslenska liðið fær þó ekki mikinn tíma til að velta tapinu fyrir sér því strax á morgun mætir það Ísrael í lokaleik sínum á Evrópumótinu. Ljóst er að liðið leikur nú um 13.-16.sæti á mótinu og á tvo leiki eftir af mótinu. „Við förum núna upp á hótel, hvílum okkur og hlöðum batteríin áður en við byrjum að undirbúa okkur fyrir leikinn gegn Ísrael. Við þurfum klárlega að sýna betri frammistöðu á morgun en í dag ef við ætlum að vinna þann leik,“ sagði Ágúst að lokum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.