Markvörðurinn ungi Breki Hrafn Árnason heldur út í atvinnumennsku en Fram tilkynntu það í dag. Breki Hrafn hefur skrifað undir samning við Benfica til ársins 2030. Markvörðurinn ungi hefur vakið mikla athygli erlendis fyrir vasklega framgöngu sína síðast liðin tvö tímabil og niðurstaðan er sú að hann er fluttur erlendis í atvinnumennsku.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.