Hamburg fær til sín 19 ára efnilegan Bosníumann
hamburg

HSV Hamburg hefur samið við hinn 19 ára gamla leikstjórnanda Alem Hadzic sem kemur til félagsins frá HC Eurofarm Pelister í Norður-Makedóníu.

Hadzic þykir eitt efnilegasta handboltaefni Bosníu og hefur þrátt fyrir ungan aldur þegar öðlast reynslu í Meistaradeild Evrópu. Á síðustu tveimur tímabilum skoraði hann 17 mörk í keppninni, meðal annars gegn Füchse Berlin og SC Magdeburg.

„Ég er mjög spenntur fyrir því að ganga til liðs við HSV Hamburg. Að flytja í sterkustu deild heims er stór áskorun en um leið frábært tækifæri fyrir mig,“ sagði Hadzic. Á síðasta tímabili skoraði hann 53 mörk og gaf 17 stoðsendingar í norður-makedónsku deildinni.

Íþróttastjórinn Johannes Bitter segir Hamburg hafa fylgst með Hadzic í tæpt ár. „Alem er ungur leikmaður með afar áhugaverðan leikstíl og mikla hæfileika. Við teljum mikilvægt að byggja hann upp í rólegheitum,“ sagði Bitter.

Áætlun HSV Hamburg er að Hadzic verði fyrst um sinn lykilmaður með varaliðinu samhliða því að æfa með meistaraflokknum. Markmiðið er að hann vinni sér smám saman sæti í Bundesliguliðinu.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top