Patrick Groetzki hefur skrifað nafn sitt í sögubækur þýsku Bundesligunnar. Fyrrverandi hornamaður Rhein-Neckar Löwen er nú sá leikmaður sem hefur unnið flest stig fyrir eitt og sama félagið í sögu deildarinnar. Groetzki lék 582 Bundesliguleiki fyrir Rhein-Neckar Löwen og tók þátt í að vinna 827 stig á þeim tíma. Það er 44 stigum meira en Volker Zerbe vann með TBV Lemgo. Danskar handboltagoðsagnir skipa næstu sæti á listanum. Lasse Svan er í þriðja sæti með 723 stig í 452 leikjum fyrir Flensburg, en Lars Christiansen er fjórði með 700 stig í 457 leikjum fyrir sama félag. Þrír leikmenn frá THW Kiel og þrír frá Flensburg eru á meðal tíu efstu á listanum, sem undirstrikar yfirburði félaganna í þýskum handbolta í gegnum árin. Enginn Íslendingur er hinsvegar á listanum. Tíu efstu á listanum:

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.