Sagosenorðaður við Bjerringbro-Silkeborg
Stian Lysberg Solum / NTB

Ciljan Sagosen, yngri bróðir norsku handboltastjörnunnar Sander Sagosen, er orðaður við danska félagið Bjerringbro-Silkeborg.

Ciljan Sagosen leikur um þessar mundir með norska félaginu Bergen en samkvæmt dönskum miðlum gæti hann verið á leið frá félaginu og til Danmerkur. Bjerringbro-Silkeborg er þar talinn líklegur áfangastaður.

Sagosen hefur áður verið orðaður við danska félagið en nú herma nýjustu fréttir að nokkuð sé víst að hann yfirgefi Bergen. Sport Silkeborg leitaði viðbragða hjá Peter K. Bertelsen, íþróttastjóra Bjerringbro-Silkeborg, vegna orðrómsins.

„Ég hef ekkert um þetta mál að segja,“ sagði Bertelsen við Sport Silkeborg. Ciljan er yngri bróðir Sander Sagosen, sem leikur með danska stórliðinu Aalborg en Ciljan lék á árinu sínu fyrsta landsleiki fyrir norska landsliðið eftir frábæra frammistöðu í norsku úrvalsdeildinni.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top