Alfreð fagnar því að þýskir landsliðsmenn leiti út fyrir Þýskaland
Sina Schuldt / dpa Picture-Alliance via AFP

Alfreð Gíslason landsliðsþjálfari Þýskalands, fagnar því að fleiri þýskir landsliðsmenn séu tilbúnir að halda áfram ferlinum utan þýsku Bundesligunnar.

Alfreð tjáði sig meðal annars um væntanleg félagaskipti Renars Uscins sem yfirgefur TSV Hannover-Burgdorf eftir næsta tímabil og gengur í raðir Paris Saint-Germain í Frakklandi.

Uscins verður þar með annar þýski landsliðsmaðurinn á skömmum tíma sem leitar út fyrir þýsku deildina. Juri Knorr hefur leikið með Álaborg í Danmörku frá sumrinu 2025 og hefur fest sig í sessi hjá danska stórliðinu.

Þrátt fyrir að þýska Bundesliga-deildin sé gjarnan talin sterkasta deild heims telur Alfreð að það geti verið afar gagnlegt fyrir leikmenn að kynnast nýju umhverfi og öðrum handbolta.

„Mér finnst mikilvægt að þeir upplifi og kynnist einhverju öðru. Bundesligan er besta deild í heimi, en deildirnar í Frakklandi og Danmörku hafa einnig orðið sterkari. Það er auðvitað afar mikilvægt fyrir okkur hvernig þessi félagaskipti hafa áhrif á hvern og einn leikmann,“ sagði Alfreð við Sport Bild.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top