Samkvæmt heimildum Handkastsins er ÍBV í leit að erlendum markverði fyrir kvennalið sitt fyrir komandi tímabil í Olís-deild kvenna. Umboðsskrifstofan 4players Sports Agent Agency auglýsti á dögunum eftir erlendum kvennamarkverði fyrir íslenskt lið í efstu deild. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Handkastsins er þar um að ræða ÍBV. ÍBV verður án norska markvarðarins Amalie Fröland á komandi tímabili eftir að hún sleit krossband í oddaleik gegn Haukum í undanúrslitum Olís-deildarinnar á síðustu leiktíð. ÍBV fór alla leið í úrslitaeinvígið en tapaði þar gegn Val 3-1. Fröland varð fyrir meiðslunum í lokaleik einvígisins gegn Haukum og verður frá keppni um lengri tíma. Ólöf Maren Bjarnadóttir steig þá upp í kjölfarið og kom gríðarlega sterk inn í lið ÍBV í úrslitaeinvíginu gegn Val, sem Valur vann 3-1. Ólöf Maren hafði verið í skugga Fröland lungann úr tímabilinu en fékk stórt hlutverk eftir meiðsli norska markvarðarins og stóð sig afar vel. Magnús Stefánsson, þjálfari ÍBV, sagði í samtali við Handkastið á dögunum að Ólöf Maren fengi tækifæri til að taka við keflinu af Fröland. „Eftir frammistöðu Ólafar í kjölfar meiðsla Amalie ætlum við að rétta Ólöfu keflið. Svo skoðum við bara hvort við finnum markmann til að vera með henni og Töru sem veitir þeim samkeppni. En það er hægara sagt en gert að finna markmann á þessum tímapunkti,“ sagði Magnús. Nú virðist hins vegar sem ÍBV sé að leita að erlendum markverði til þess að styrkja stöðuna og auka samkeppnina í markinu fyrir komandi tímabil. Andrea Jacobsen gekk í raðir ÍBV í sumar frá Blomberg-Lippe og má búast við því að ÍBV verði með gríðarlega sterkt lið á komandi tímabili.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.